займ на картукредиты онлайн

Astridur Ástríður Alda Sigurðardóttir píanóleikari lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík undir handleiðslu Önnu Þorgrímsdóttur. Á árunum 2000-03 stundaði hún nám hjá Reiko Neriki við Indiana University - Jacobs School of Music í Bloomington þaðan sem hún lauk Artist Diploma. Ástríður hefur sótt námskeið og einkatíma í píanóleik og kammertónlist hjá listamönnum á borð við Geörgy Sebök, Ludwig Hoffmann, Janos Starker, Jürgen Schröder og Olaf Dressler. Ástríður hefur komið víða fram á tónleikum, ýmist sem einleikari eða með öðrum tónlistarmönnum. Hún hefur leikið einleik með Internationales Jugendsinfonie-orchester Elbe-Weser í Þýskalandi og með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Ástríður leikur með kammerhópnum Elektra Ensemble og tangósveitinni Fimm í tangó. Sjálf hefur hún gefið út sólóplötuna CHOPIN (2010) en einnig hafa komið út geislaplöturnar PORTRAIT (2014) með Emilíu Rós Sigfúsdóttur flautuleikara, FIMM Í TANGÓ (2010) og ALDARBLIK (2007) með henni og söngvurunum Eyjólfi Eyjólfssyni og Ágústi Ólafssyni.

Samstarfsaðilar - Affiliates:
menntamalaraduneytid snorrastofa soknaraaetlun_vesturlands

 


Sígild tónlist í sögulegu umhverfi - Classical Music in Historical Surroundings