Eliisa Suni hefur leikið víða sem meðleikari í ljóðasöng og einnig í kammertónlist. Hún hlaut fyrstu verðlaun í Kangasniemi keppninni fyrir meðleikara í ljóðasöng árið 1997, þriðju verðlaun í Pentti Koskimies ljóðasöngkeppninni árið 1996 og þriðju verðlaun í Melartin ljóðasöngkeppninni árið 2002. Eliisa Suni lauk meistaranámi í hljóðfæraleik og tónlistarfræðum frá háskólanum í Jyväskylä. Hún stundaði jafnframt nám í píanóleik hjá Ivari Ilja prófessor við tónlistarháskólann í Eistlandi og lauk þaðan námi með hæstu einkunn. Sem stendur vinnur hún sem meðleikari við háskólann í Jyväskylä. Hún leikur ennfremur fyrir óperuna í Jyväskylä. Sumarið 2012 kemur hún fram á Savonlinna óperuhátíðinni í Finnlandi.
Flytjendur 2012
- Sigrún Eðvaldsdóttir, fiðla
- Bryndís Halla Gylfadóttir, selló
- Eliisa Suni, píanó
- Josef Ognibene, horn
- Heini Kärkkäinen, píanó
- Helga Þóra Björgvinsdóttir, fiðla
- Réka Szilvay, fiðla
- Sirkka Lampimäki, sópran
- Steinunn Birna Ragnarsdóttir, píanó
- Vovka Ashkenazy, píanó
- Þóra Einarsdóttir, sópran
- Þórunn Ósk Marínósdóttir, víóla
Leita
Eliisa Suni, píanó
- Details
- (Flytjendur 2012)