Sigrún Eðvaldsdóttir hóf fiðlunám 5 ára gömul hjá Gígju Jóhannesdóttur í Barnamúsíkskólanum í Reykjavík. Þaðan lá leiðin til Guðnýjar Guðmundsdóttur í Tónlistarskólann í Reykjavík og lauk hún þaðan einleikaraprófi árið 1984. Hún sótti einkatíma hjá hjónunum Roland og Almitu Vamos og hélt síðan til náms í Curtis tónlistarháskólann í Philadelphiu hjá Jaimee Laredo og Jascha Brodsky, þaðan útskrifaðist hún með Bachelor of Music gráðu. Hún var meðlimur í Miami strengjakvartettinum frá 1988-1990. Hún hlaut verðlaun í nokkrum alþjóðlegum keppnum fyrir leik sinn m.a. 2. verðlaun í Leopold Mozart keppninni í Augsburg 1987, Bronz verðlaun í Sibeliusar keppninni 1990 og 2.verðlaun í Carl Flesch keppninni í London 1992. Árið 1998 var Sigrún sæmd riddarakrossi hinnar Íslensku fálkaorðu fyrir störf sín á sviði tónlistar. Árið 2005 flutti hún allar sónötur Beethovens fyrir fiðlu og píanó á Listahátíð í Reykjavík. Hún hefur leikið einleik og kammermúsík víða um heim og hefur gegnt starfi 1.konsert meistara Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá árinu 1998. Hún mun halda tónleika í Kína á þessu ári ásamt stöllu sinni Selmu Guðmundsdóttur.
Flytjendur 2012
- Sigrún Eðvaldsdóttir, fiðla
- Bryndís Halla Gylfadóttir, selló
- Eliisa Suni, píanó
- Josef Ognibene, horn
- Heini Kärkkäinen, píanó
- Helga Þóra Björgvinsdóttir, fiðla
- Réka Szilvay, fiðla
- Sirkka Lampimäki, sópran
- Steinunn Birna Ragnarsdóttir, píanó
- Vovka Ashkenazy, píanó
- Þóra Einarsdóttir, sópran
- Þórunn Ósk Marínósdóttir, víóla
Leita
Sigrún Eðvaldsdóttir, fiðla
- Details
- (Flytjendur 2012)