Steinunn Birna Ragnarsdóttir lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1981 þar sem kennari hennar var Árni Kristjánsson og meistaragráðu frá New England Conservatory of Music í Boston í Bandaríkjunum árið 1987. Steinunn hefur hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar fyrir leik sinn og komið fram á ýmsum alþjóðlegum tónlistarhátíðum. Hún bjó um tíma á Spáni og kom þar víða fram á tónleikum Hún lék einleik ásamt Virtuosi di Praga hljómsveitinni í Rudolphinum tónleikasalnum í Prag í júní 2008. Meðal þeirra einleiksverka sem hún hefur leikið með Sinfóníuhljómsveit Íslands eru píanókonsert eftir Edvard Grieg og Slátta eftir Jórunni Viðar, en hvort tveggja hefur verið gefið út á geislaplötu. Hún hefur gert margar geislaplötur, meðal þeirra er „Ljóð án orða" ásamt Bryndísi Höllu Gylfadóttur sem hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin árið 1998. Einnig kom út diskur þeirra “Myndir á þili” árið 2008. Hún hefur verið virkur þátttakandi í íslensku tónlistarlífi um árabil, komið fram á Listahátíð í Reykjavík, hjá Kammermúsikklúbbnum og á fjölmörgum tónlistarhátíðum og tónleikaröðum hér á landi og erlendis. Hún stofnaði Reykholtshátíðina árið 1997 og var listrænn stjórnandi hennar fyrstu 15 árin. Steinunn Birna starfar nú sem Tónlistarstjóri Hörpu
Flytjendur 2014
- Ari Vilhjálmsson, fiðla
- Domenico Codispoti, píanó
- Hanna Dóra Sturludóttir, messósópran
- Hugi Guðmundsson, tónskáld
- Jan Bastiaan Neven, selló
- Lonneke van Straalen, fiðla
- Sif Margrét Tulinius, fiðla
- Sigurgeir Agnarsson, selló
- Steinunn Birna Ragnarsdóttir, píanó
- Þórunn Ósk Marínósdóttir, lágfiðla
- Þórður Magnússon, tónskáld
Leita
Steinunn Birna Ragnarsdóttir, píanó
- Details
- (Flytjendur 2014)