займ на картукредиты онлайн

Flytjandi

Mona Kontra er fædd í Svíþjóð. Hún sýndi fljótt mikla hæfileika og kom fyrst fram sem einleikari með Norrköping sinfóníuhljómsveitinni aðeins 12 ára gömul. Mona lauk einleikaraprófi frá Sibeliusarakademiunni í Helsinki með hæstu einkunn. Kennari hennar þar var hinn virti Eero Heinonen. Mona hefur leikið einleik með mörgum af helstu hljómsveitum Svíþjóðar, haldið einleikstónleika og tekið þátt í kammermúsík í Kanada, Asíu, Bandaríkjunum og víða í Evrópu. Hún hefur margsinnis komið fram í útvarpi, sjónvarpi og leikið inn á fjölda geisladiska. Mona starfar sem píanóleikari með kammerhljómsveitinni í Sundsvall. Hún er ein af stofnendum píanótríósins Trio Nordica (www.trionordica.com). Tríóið gaf nýlega út geisladisk með verkum eftir Elfridu Andrée, gefinn út af INTIM Musik.

Samstarfsaðilar - Affiliates:
menntamalaraduneytid snorrastofa soknaraaetlun_vesturlands

 


Sígild tónlist í sögulegu umhverfi - Classical Music in Historical Surroundings