займ на картукредиты онлайн

Flytjandi

Audun Andre Sandvik er einn af fremstu sellóleikurum Norðurlanda í dag og hefur verið spáð glæsilegum alþjóðlegum ferli. Árið 2002 bar hann sigur úr býtum í hinni virtu keppni einleikara við háskólann í Indiana í Bandaríkjunum. Þar brautskráðist hann með einleikaragráðu (Performer Diploma) undir handleiðslu hins heimsþekkta kennara og flytjanda Janos Starker. Audun hlaut einleikaragráðu frá Ríkislistaháskóla Noregs árið 2007. Meðal kennara hans þar til fjögurra ára var hinn heimsþekkti sellóleikari Truls Mørk. Audun Sandvik er fyrsti sellóleikari Norsku útvarpshljómsveitarinnar og meðlimur í Norsku kammerhljómsveitinni. Hann er mjög virkur einleikari og kammermúsikant og hefur verið boðið að leika á stærstu hátíðunum í Noregi. Nýlega hefur hann leikið með heimsþekktum listamönnum á borð við Leif Ove Andsnes, Kim Kaskashian, Janine Jansen, Julian Rachlin. Audun Sandvik leikur á ítalskt selló smíðað árið 1695 af Giorgio Taninger.

Samstarfsaðilar - Affiliates:
menntamalaraduneytid snorrastofa soknaraaetlun_vesturlands

 


Sígild tónlist í sögulegu umhverfi - Classical Music in Historical Surroundings