займ на картукредиты онлайн

Flytjandi

Bjarni Thor Kristinsson er í hópi þeirra íslensku óperusöngvara sem náð hefur hvað lengst á erlendri grund. Haustið 1994 hóf Bjarni framhaldsnám við óperudeild Tónlistarháskólans í Vín og naut þar leiðsagnar Helene Karusso og Curt Malm. Árin 1997-2000 starfaði Bjarni sem aðalbassasöngvari Þjóðaróperunnar þar í borg. Að þeim tíma liðnum sneri hann sér að lausamennsku og hefur sungið víða um heim. Meðal helstu óperuhlutverka Bjarna má nefna: Barón Ochs í Rósariddaranum, Osmin í Brottnáminu úr kvennabúrinu, Pímen í Boris Godunow, Rocco í Fidelio, John Falstaff í Kátu konunum frá Windsor, van Bett í Zar und Zimmermann; í óperum Wagners: Wotan í Rínargullinu, Pogner í Meistarasöngvurunum, Daland í Hollendingnum fljúgandi, Hinrik konung í Lohengrin, Gurnemanz í Parsifal og risanum Fáfni í Niflungahringnum. Eftir að Bjarni gerðist lausamaður í söng hefur hann verið fastur gestur í Ríkisóperunni í Berlín auk þess að koma fram í óperuhúsum í Chicago, París, Feneyjum, Verona, Flórenz, Palermo, Róm, Lissabon, Barcelona, Hamborg, Dresden, München, Wiesbaden, Karlsruhe og Dortmund svo eitthvað sé nefnt. Bjarni söng hlutverk Osmin í Brottnáminu úr kvennabúrinu hjá Íslensku óperunni haustið 2006 og fékk Grímuna, íslensku leiklistarverðlaunin, sem söngvari ársins fyrir hlutverkið. Þá tók hann þátt í flutningi á verkinu Edda 1 eftir Jón Leifs með Sinfóníuhljómsveit Íslands haustið 2006. Framundan eru verkefni í Berlin, Tokyo, Köln, Barcelona, Bari og Toulon svo eitthvað sé nefnt.

Samstarfsaðilar - Affiliates:
menntamalaraduneytid snorrastofa soknaraaetlun_vesturlands

 


Sígild tónlist í sögulegu umhverfi - Classical Music in Historical Surroundings