Þórður Magnússon tónskáld hóf ungur nám í gítar- og píanóleik. Þórður naut m.a. handleiðslu Guðmundar Hafsteinssonar í Tónlistarskólanum í Reykjavík og lauk tónfræðideildarprófi frá skólanum 1996. Hann hlaut styrk úr minningarsjóði Jean Pierre Jacquillat 1997 og hélt um haustið til Frakklands til að stunda tónsmíðanám í Conservatorie National Supérieur de Musique de Paris. Verk eftir Þórð hafa m.a. verið tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna og til Tónlistarverðlauna Norðurlanda-ráðs. Árið 2004 fékk Þórður Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir fyrstu sinfóníu sína. Verk Þórðar hafa verið flutt af hinum ýmsu hópum, svo sem Caput-hópnum, Tríó Nordica og Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Flytjendur 2013
- Bristol Bach Choir
- Christopher Finch
- Nigel Nash
- Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanó
- Ari Þór Vilhjálmsson, fiðla
- Ásdís Valdimarsdóttir, lágfiðla
- Bryndís Halla Gylfadóttir, selló
- Gissur Páll Gissurarson, tenór
- Helga Þóra Björgvinsdóttir, fiðla
- Sigurgeir Agnarsson, selló
- Steinunn Birna Ragnarsdóttir, píanó
- Þórður Magnússon, tónskáld
Leita
Þórður Magnússon, tónskáld
- Details
- (Flytjendur 2013)