займ на картукредиты онлайн

AnnaAnna Guðný Guðmundsdóttir hlaut fastráðningu við Sinfóníuhljómsveit Íslands árið 2005.  Hún brautskráðist frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1979 þar sem kennarar hennar voru Hermína S. Kristjánsson, Jón Nordal og Margrét Eiríksdóttir, en þangað kom hún úr Barnamúsíkskólanum þar sem Stefán Edelstein var kennari hennar.   Hún stundaði Post Graduate-nám við Guildhall School of Music í Lundúnum.  Hún hefur síðan starfað á Íslandi við margvísleg störf píanistans, í kammertónlist, meðleik og sem einleikari.  Hún kemur reglulega fram á Listahátíð í Reykjavík, svo og innan Tíbrár tónleikaraðarinnar í Salnum í Kópavogi.  Hún er píanóleikari Kammersveitar Reykjavíkur, hefur ferðast víða með henni og leikið inn á geisladiska, en alls hefur hún leikið inn á um 30 diska með ýmsum listamönnum. Hún vann við tónlistardeild Listaháskóla Íslands frá stofnun hennar 2001 til ársins 2005.  Í dag starfar hún sem píanóleikari við Tónlistarskólann í Reykjavík. Hún hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin árið 2009 sem flytjandi ársins. Anna Guðný mun í sumar koma fram á Reykjavík Midsummer Music hátíðinni í Hörpu í júní; Kammertónleikum á Kirkjubæjarklaustri svo og á Reykholtshátíðinni.

Samstarfsaðilar - Affiliates:
menntamalaraduneytid snorrastofa soknaraaetlun_vesturlands

 


Sígild tónlist í sögulegu umhverfi - Classical Music in Historical Surroundings