займ на картукредиты онлайн

HelgaHelga Þóra Björgvinsdóttir, fiðluleikari, fæddist árið 1984. Hún stundaði nám við Tónmenntaskóla Reykjavíkur hjá Gígju Jóhannsdóttur og síðar við Tónlistarskólann í Reykjavík hjá Guðnýju Guðmundsdóttur, konsertmeistara. Vorið 2004 útskrifaðist hún með Bachelor-gráðu frá Listaháskóla Íslands þar sem aðalkennari hennar var Guðný Guðmundsdóttir. Haustið 2004 hóf Helga Þóra nám við Listaháskólann í Berlín (Universität der Künste Berlin) hjá Isabelle Faust og lærði kammertónlist hjá Artemis kvartettinum. Í júlí 2007 þreytti Helga Þóra Diplom-próf og hlaut hæstu einkunn.

Sem einleikari hefur Helga Þóra leikið fiðlukonserta eftir J. Brahms, F. Mendelssohn og fiðlukonsert nr. 2 eftir Bohuslav Martinu með Sinfóníuhljómsveit Íslands, tvær rhapsódíur fyrir fiðlu og hljómsveit eftir Béla Bartók með Sinfóníuhljómsveit Unga fólksins og konsert fyrir 2 fiðlur eftir J.S. Bach með Strengjasveitinni Skark.

Helga Þóra hefur verið meðlimur Kammersveitarinnar Ísafoldar frá upphafi, er meðlimur Elektra Ensemble sem var valinn Tónlistarhópur Reykjavíkurborgar árið 2009, leikur reglulega með Kammersveit Reykjavíkur og Ensemble Adapter í Berlín. Hún hefur m.a. leikið með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Solistenensemble Kaleidoskop, Orkester Norden, Orchestre Prométhée, Orchestre de la Cité Internationale Universitaire de Paris, SymphoniaAssai og Sebestyen strings.

Helga Þóra hefur sótt námskeið til Ítalíu, Frakklands og Þýskalands og hefur numið fiðluleik hjá m.a. Donald Weilerstein, Boris Garlitsky, Laurent Korcia, Stephen Clapp, Almitu Vamos, Suzanne Gessner og Svetlin Roussev.

Síðastliðin 2 ár hefur Helga Þóra verið búsett í Belgíu þar sem hún stundaði Masters-nám í fiðluleik við Konunglega tónlistarháskólann í Brussel (Koninklijk Conservatorium Brussel) hjá prof. Kati Sebestyen. Hún lauk Masters-prófinu sínu í júní 2013.

Samstarfsaðilar - Affiliates:
menntamalaraduneytid snorrastofa soknaraaetlun_vesturlands

 


Sígild tónlist í sögulegu umhverfi - Classical Music in Historical Surroundings