займ на картукредиты онлайн

SigurgeirSigurgeir Agnarsson er aðstoðarleiðari sellódeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Hann hóf nám á selló hjá Gunnari Kvaran við Tónlistarskóla Garðabæjar og lauk síðar einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík. Frekara nám stundaði hann við New England Conservatory of Music í Boston og Robert Schumann Tónlistarháskólann í Duesseldorf.

Sigurgeir er deildarstjóri strengjadeildar Tónlistarskólans í Reykjavík. Einnig er hann einn af stofnendum Alþjóðlegu Tónlistarakademíunnar í Hörpu.

Sigurgeir hefur komið fram sem einleikari m.a. með Sinfóníuhljómsveit íslands, Bochumer Symphoniker, Kammersveit Reykjavíkur og Blásarasveit Reykjavíkur. Þess utan hefur Sigurgeir hefur verið virkur í íslensku tónlistarlífi og komið reglulega fram á hinum ýmsu tónleikum víða um land sem og erlendis. Frá árinu 2013 er hann listrænn stjórnandi Reykholtshátíðar.

Samstarfsaðilar - Affiliates:
menntamalaraduneytid snorrastofa soknaraaetlun_vesturlands

 


Sígild tónlist í sögulegu umhverfi - Classical Music in Historical Surroundings