займ на картукредиты онлайн

BerglindBerglind Stefánsdóttir hóf flautunám við Tónlistarskóla Skagafjarðar og lagði síðar stund á nám við Tónlistarskólann í Reykjavík þar sem  kennarar hennar voru Bernharður Wilkinson og Hallfríður Ólafsdóttir. Þaðan lauk hún blásarakennaraprófi og starfar nú sem flautukennari við Skólahljómsveit Kópavogs.  Berglind hefur sótt einkatíma og námskeið erlendis, m.a. hjá William Bennett, Dennis Bouriakov, Philipe Bernold, Julien Beaudiment, Toke Lund Christiansen og Cecilie Løken. Hún er virkur þátttakandi í íslensku tónlistarlífi og hefur t.d. leikið með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Blásaraoktettinum Hnúkaþey, Blásarasveit Reykjavíkur, komið fram á Listahátíð í Reykjavík, Myrkum- og Norrænum músíkdögum og sumartónleikum víða um land. Hún er meðlimur í Íslenska flautukórnum sem kemur reglulega fram á tónleikum.

Samstarfsaðilar - Affiliates:
menntamalaraduneytid snorrastofa soknaraaetlun_vesturlands

 


Sígild tónlist í sögulegu umhverfi - Classical Music in Historical Surroundings