займ на картукредиты онлайн

Flytjandi

Auður Gunnarsdóttir er fædd í Reykjavík. Hún lauk 8. stigi í söng frá Söngskólanum í Reykjavík vorið 1991 þar sem kennari hennar var Ólöf Kolbrún Harðardóttir. Árið 1992 hélt hún til Stuttgart þar sem hún stundaði framhaldsnám við tónlistarháskólann og lauk árið 1997 prófi frá óperu- ljóða og einsöngvaradeild. Kennarar hennar þar voru Prof.Luisa Bosabalian og Carl Davis. Eftri það lá leiðin til Würzburgar þar sem hún var fastráðin til ársins 2006 Þar söng hún m.a. hlutverk Rosalindu í Leðurblökunni, Antóníu í Ævintýrum Hoffmanns, Pamínu í Töfraflautunni, Micaälu í Carmen, Donnu Elviru í Don Giovanni, Blance í Samtali karmellítanna, Annínu í Nótt í Feneyjum, Luísu í Unga lordinum o.m.fl. Auk þess hefur Auður komið fram ífjölmörgum óperuhúsunum í Þýskalandi, svo sem Mannheim, Heidelberg, Bielefeld og Hannover. Auður hefur haldið fjölda ljóðatónleika hér heima og erlendis. Á námsárunum sótti Auður námskeið hjá Renötu Scotto, Brigitte Fassbaender og Hermann Prey.

Árið 1999 kom út geisladiskurinn Íslenskir söngvar þar sem Jónas Ingimundarson leikur á píanóið. Í Íslensku óperunni hefur Auður farið með hlutverk Mimiar í La Bohéme, Pamínu í Töfraflautunni, Greifynjunnar í Brúðkaupi Fígarós og Santuzzu í Cavaleria Rusticana. Auður hefur hlotið fjölda styrkja, m.a. listamannalaun ríkisins, styrk úr Tónlistarsjóði og styrk Richard Wagner félagsins í Stuttgart.

Samstarfsaðilar - Affiliates:
menntamalaraduneytid snorrastofa soknaraaetlun_vesturlands

 


Sígild tónlist í sögulegu umhverfi - Classical Music in Historical Surroundings