Thomas hóf ungur tónlistarnám í Bandaríkjunum, lauk license d'enseignement gráðu í píanóleik 1975 við Ecole Normale de Musique í París, bachelorgráðu í píanóleik við Southern Illinois Universty at Carbondale og loks doktorsprófi 1992 við University of Illinois at UrbanaChampaign. Hann hlaut fyrstu verðlaun í tónlistarkeppninni Artist Presentation í St.Louis, Missouri árið 1985. Hann starfaði sem undirleikari, kórstjóri og organisti í Bandaríkjunum 1983 - 1990. Thomas hefur verið aðal-undirleikari Karlakórsins Heimis frá 1991 og kennari við Tónlistarskóla Skagafjarðar frá sama tíma.
Flytjendur 2015
Dagskrá Snorrastofu 2015
Leita
Thomas Randal Higgerson
- Details
- (Flytjendur 2015)