займ на картукредиты онлайн

AriAri Þór Vilhjálmsson er einn af fremstu fiðluleikurum landsins.  Í vetur gegndi hann stöðu 2. konsertmeistara Fílharmóníuhljómsveitarinnar í Helsinki og var einnig gestakonsertmeistari við Orchestre National du Capitole de Toulouse í Frakklandi.  Hann hóf störf við Sinfóníuhljómsveit Íslands árið 2006 og gegnir nú starfi leiðara 2. fiðlu hljómsveitarinnar.  Hann lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík undir handleiðslu Guðnýjar Guðmunsdóttur árið 2001 og hélt svo vestur um haf.  Þar lærði hann hjá Almitu og Roland Vamos, Rachel Barton Pine og Sigurbirni Bernharðssyni. Hann lauk Bachelor of Music gráðu frá University of Illinois og síðar Master of Music frá Northwestern University í Chicago.  Á námsárunum tók hann þátt í heimsreisu Bjarkar Guðmundsdóttur árið 2003 sem félagi í The Iceland String Octet.  Ari hefur flutt einleikskonserta eftir m.a. Mozart, Beethoven, Brahms, Hafliða Hallgrímsson, Prokofieff og Shostakovich með hljómsveitum á Íslandi og í Bandaríkjunum. Á undanförnum árum hefur hann spilað á einleiks- og kammertónleikum fyrir Reykholtshátíð, Kammermúsikklúbbinn, Reykjavik Midsummer Music og Emory University í Atlanta. Margir af efnilegustu fiðlunemendum á landinu hafa sótt nám hjá Ara við Tónlistarskólann í Reykjavík þar sem hann hefur stundað kennslu frá árinu 2008.  Ari er einn af stofnendum Alþjóðlegu tónlistarakademíunnar í Hörpu og situr í stjórn hennar.

Samstarfsaðilar - Affiliates:
menntamalaraduneytid snorrastofa soknaraaetlun_vesturlands

 


Sígild tónlist í sögulegu umhverfi - Classical Music in Historical Surroundings